fimmtudagur, mars 30, 2006 |
|
Ég er búin að fara í aðgerðina og allt gekk samkvæmt áætlun. Læknirinn sjálfur er mjög ánægður með árangurinn. Ég verð á spítalanum í nótt og ætla hvíla mig og búa undir heimferðina. Mér líður ágætlega miðað við aðstæður og kem heim annaðkvöld.
|
posted by Thorey @ 11:41 |
|
|
föstudagur, mars 24, 2006 |
|
Loksins komin dagssetning
Já það er komið að aðgerðinni. Ég fer út vonandi á mánudag og næ þá sólahrings lay-over í Leverkusens til að heilsa upp á liðið og setja smávegis í tösku. Þarf líka nauðsynlega að skila straumtæki sem ég er búin að vera með í láni frá lækninum minum en átti að skila í byrjun janúar... Fer síðan á þriðjudeginum til Mílanó, tékk á miðvikudag hjá lækninum og svo skorin á fimmtudag. Mér er mjög létt við þessar fréttir. Nú tekur batatímabilið loksins við en auðvitað er ég drullu kvíðin fyrir að vakna upp og vera að drepast. Þetta verður samt bara allt í lagi vonandi.
Búin að vera super busy í skólanum alla vikuna og afsaka ég því lélega bloggsíðu. Ég hef heldur ekkert að segja þegar ég bara læri allan daginn og fer svo á æfingu og heim að sofa... En ég mun reyna að bæta þetta upp næstu vikur.
Hildur vinkona er loksins komin heim en þó bara í nokkra daga. Hún býr í Danmörku og ég hef ekki séð hana í 15 mánuði. Það er langt síðan ég hef fengið svona mikið sjokk við að hitta eina manneskju (síðast þegar ég rakst á Nínu á Kastrup fyrir tilviljun þegar ég bjó í Svíþjóð... fékk flog...). Hildur er búin að vera á DDV og þvílíkur árangur. Hún hefur nú alltaf verið falleg stelpan en vá, hún er gullfalleg núna. Til hamingju elskan :)
Farin að hitta hana Hildi mína á kaffihúsi :) Bis bald |
posted by Thorey @ 20:23 |
|
|
laugardagur, mars 11, 2006 |
|
HM í frjálsum
er í gangi núna og ég er bara heima á klakanum fjarri góðu gamni. Það var þó gaman að mótið var sýnt í sjónvarpinu og er ég búin að sitja límd. Mörg skemmtileg úrslit í dag. T.d fannst mér gaman að sjá sænska hástökkvarann, Linus, ná í 3.sæti en ég man eftir honum þegar hann var pinku pons, 13.ára, á æfingu með mér og Völu í Malmö. Svo er Bryan að standa sig mjög vel í tugþrautinni en hann er víst búinn að vera mjög veikur síðan hann mætti til Rússlands. Með matareitrun. Það er nú ekki ávísun á árangur sú skemmtilegheit. Gaman var að sjá æfingafélaga Silju vinna grindina en æfingavinkona mín hún Silke Spiegelburg hefði mátt fara hærra í stönginni eins og Monica Pyrek. Hefði viljað sjá hana taka silfrið frekar en Önnu Rogowsku. En að sjá Svetlönu Feofanovu ná bronsinu eftir erfið meiðsli er hvetjandi. Svo var hún líka bara orðin svo hugguleg :) Gaman að því.
Annars er ég búin að keppa tvisvar núna í vikunni. Fyrst í kareoki og aftur í gær í parakeppni í dansi í afmælinu hjá Danna úr TMC. Við Danni gerðum okkur lítið fyrir og sigruðum.... Enda stórkostlegt danspar þar á ferð.... |
posted by Thorey @ 18:11 |
|
|
föstudagur, mars 10, 2006 |
|
Ert þú draumaprins kvenmanna??
Hvernig gera á konu hamingjusama : Það er ekki erfitt, til að gera konu hamingjusama þarftu bara að vera:
1. vinur 2. félagi 3. ástmaður 4. bróðir 5. faðir 6. húsbóndi 7. yfirmaður 8. rafvirki 9. trésmiður 10. pípari 11. handlaginn 12. skreytimeistari 13. stílisti 14. sérfræðingur í kynlífi 15. mannþekkjari 16. sálfræðingur 17. hagfræðingur 18. reiknimeistari 19. góður huggari 20. góður hlustandi 21. skipuleggjari 22. góður faðir 23. snyrtilegur 24. samúðarfullur 25. sportlegur 26. hlýr 27. skemmtilegur 28. aðlaðandi 29. snillingur 30. fyndinn 31. hugmyndaríkur 32. mjúkur 33. sterkur 34. skilningsgóður 35. þokkafullur 36. prúður 37. metnaðarfullur 38. hæfileikaríkur 39. þolgóður 40. skynsamur 41. trúr 42. ábyggilegur 43. ástríðufullur
..og gleymir aldrei að: 44. gefa henni gjafir reglulega 45. fara með henni að versla 46. vera heiðarlegur 47. vera örlátur 48. að stressa hanna ekki 49. horfa ekki á aðrar konur og um leið þá verðurðu líka að: 50. veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um sjálfan þig 51. gefa henni allan tíma sem hún þarf 52. gefa henni mikið frelsi, 53. ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer
Það er mjög áríðandi að gleyma aldrei:
1. afmælisdögum 2. brúðkaupsdögum 3. plönum sem hún hefur ákveðið
TIL AÐ GERA KARLMANN HAMINGJUSAMANN : 1. Gefa honum að borða 2. Sjá til að hann fái það reglulega 3. og þegja svo.... |
posted by Thorey @ 12:19 |
|
|
miðvikudagur, mars 08, 2006 |
|
Karoke....
Hvar eru vinir mínir sem ætla að koma og styðja mig í karoke keppninni????.... |
posted by Thorey @ 21:16 |
|
|
|
|
Er ekki bara mikið til í þess? .... (tekið af síðunni hennar Silju Hrundar)
|
posted by Thorey @ 00:28 |
|
|
þriðjudagur, mars 07, 2006 |
|
Búin að missa vitið?
Ég er að fara að keppa í karoke keppni!!! Já nú bregður ykkur enda vel kunnug mínum yndislegu sönghæfileikum. En nei, ég er sko að fara að slá í gegn :) Verð núna bara að kaupa eyrnatappa handa áhorfendum.....
Annars fór ég í yfirhalningu í gær. Kominn tími til. Skellti mér í strípur og klippingu og bara mjög sátt. Bað um að láta snyrta en gellan bara tók af mér hárið nánast en hélt samt í síddina. Ég er eiginlega með hálfgerða red-neck klippingu. Töff það!!
Ætla að læra smá í klukkutíma núna og horfa svo á Prison Brake. Einn af gleðigjöfum vikunnar. Hinir eru 24 og Rome á sunnudagskvöldum. Snilldar þættir allir þrír. |
posted by Thorey @ 20:34 |
|
|
mánudagur, mars 06, 2006 |
|
Burt með daufleikann
Þetta blogg er nú bara alveg að ligna útaf af vegna dofleika en ég held ég verði nú að fara að hressa þetta aðeins við hérna.
Helgin var bara fín. Smá léttir í gangi eftir að hafa tekið ákvörðun um að fara í aðgerð og laugardagurinn fór í kæruleysi. Búðarráp og skemmtanir. Keypti bara helling og fór líka í Adidas og fann þar fullt af flottu dóti.
Laugardagskvöldið var bara fínt. Svo við höldum aðeins áfram með pick up línur þá fékk ég eina sem var frekar sérstök: "Þú ert svona stelpa sem þarf einhvern stóran og sterkar gaur. Viltu ekki finna vöðvana á mér?"
Frekar fyndið bara en hann skoraði nú ekki mikið greyið.
Annars fannst mér frekar fyndið að hafa hitt Krumma í Mínus og haldið að hann væri einhver útlendingur. Ekki alveg með á nótunum. Annars kom það fyrir mig eitt skiptið á djamminu að ég hitti sjúkraþjálfarann minn og fór að spjalla við hann. Mér fannst hann nú verða eitthvað skrítinn á svipinn gaurinn svo ég ákvað nú að vera ekkert að bögga hann ef þetta væri nú svo ekki hann. Allt kvöldið var ég svo að pæla í hvort þetta væri hann eða ekki og komst að þeirri niðurstöðu að svona hryllilega ómannglögg gæti ég bara ekki verið og því væri þetta hann. Á mánudeginum átti ég svo tíma hjá honum og þakkaði honum fyrir síðast. "Hvað meinarðu?" Jú á Oliver... "Aldrei farið þar inn...!!" Og ég blá edrú. Hvernig er þetta hægt????? |
posted by Thorey @ 17:31 |
|
|
fimmtudagur, mars 02, 2006 |
|
Skrítinn dagur
Þetta var svona dagur tilfinninga, staðreynda og verkefnavinnu. Dagur sem þurfti að koma líklega. Ég tók eiginlega allan tilfinningaskalann í dag þegar ég fékk þær fréttir að sprauturnar í Mexico sem ég hafði verið að hugsa um, muni ekki virka. Heyri síðan að hægt sé að laga þetta með aðgerð og ég komin á fulla ferð eftir 3 mánuði en heyri svo að ég gæti byrjað að æfa eftir 3 mánuði en ekki sjéns á að geta stokkið þá alveg strax. Ég hef talað við c.a 6-7 lækna og allir segja þeir misjafnt og að þeirra aðferð sé sú besta og ég eigi að fara eftir þeirra ráðum. Ekkert skrítið að maður sé orðinn dofinn af rugli í hausnum.
Aumingja krakkarnir sem ég er í verkefna vinnu með. Það er msn, skype, símtal til Þýskalands og USA á milli matlab kóða og skýrslugerðar. En þrátt fyrir að dagurinn hafi verið eiginlega ömurlegur þá er það nú þessu brjálaða verkefni að þakka að ég fer í rúmið sátt við lífið. Ég kynntist nefninlega frábærum krökkum í gegnum verkefnið og þeim tekst að halda brosinu á lofti. Það er eiginlega bara langt síðan að ég hef hlegið svona mikið :) Búin að vera í allt of djúpum pælingum síðustu mánuði.
Ég vona að ákvarðanartakan fari að taka enda og ég geti komið smá ró á hugann minn. |
posted by Thorey @ 23:02 |
|
|
|
|