the
 
the
fimmtudagur, júní 22, 2006
Brúðkaupið í Bolungarvík

var hreinlega geggjað. Katrín og Steinar, meðlimir í TMC, voru að gifta sig síðustu helgi á Bolungarvík. TMC gengið skellti sér á kjálkann og var stemningin hreinlega ótrúleg. Þessi hópur er nú bara einstakur!! Alltaf stuð hjá okkur :)




Vantaði þó Silju og Kristján enda nýbakaðir foreldrar. Til hamingju Silja og Kristján með JR og til hamingju Katrín og Steinar með hjónabandið!!

Fleiri myndir úr brúðkaupinu má sjá í myndavélinni minni og á síðu Danna...
posted by Thorey @ 20:44   6 comments
miðvikudagur, júní 21, 2006
OMG

Á laugardaginn er mér boðið í:

1 barnaafmæli
1 25 ára afmæli
1 30 ára afmæli
1 giftingu
2 útskriftir

Gjafir = fer á hausinn..
posted by Thorey @ 12:50   4 comments
sunnudagur, júní 11, 2006
Staðan

Frakklandsferðin var mjög fín fyrir utan kuldann. Ég gisti semsagt í París á leiðinni til og frá frænku og ég var bara skjálfandi báðar næturnar. Tók svo túr um París sem endaði mjög fljótlega yfir heitum kaffibolla inn á kaffihúsi. Einfaldlega of kalt fyrir mig.
Burkni: ég fór upp á Pui Du Dome þegar ég heimsótti frænku mína haustið 03. Það er rosalega fallegt umhverfi þarna í kring og gaman að labba þarna upp. Ég var í svo mikilli letiferð núna að fjallganga kom ekki til greina... Mun þó vonandi kíkja aftur þarna upp fljótlega.

Frænka er svo mikill snillingur í eldhúsinu að ég held hún slái alla kokka út. Hún hefur stúderað óteljandi uppskriftabækur til að elda handa familíunni sinni. Ég fékk andabringur í appelsínusósu og einnig lúðu í kryddblandaðri kókosmjólk. Ég vorkenni ykkur að fá ekki að smakka eldamennskuna hennar... hún er alveg einstök!!!

Ég er nú búin að vera heima í viku og er byrjuð að vinna. Mér list rosa vel á nýju vinnuna og vinnufélagana. Lenti strax í kvennapottapartýi eftir vinnu á föstudag og var aðeins meira fjör en ég hafði búist við :)
Ég er líka að komast inn í smá rythma með æfingar og náði ég alveg ágætis æfingaviku. Nú fer rútínan mín að verða ljós og æfingaplanið og ætti því formið að fara aðeins upp á við héðan af. Öxlin er líka öll að koma til en ég get orðið lyft hendinni 134° fram.

Ég gleymdi snúrunni til að taka myndir af myndavélinni og setja á tölvuna í Þýskalandi og er ég svo fúl yfir því. Verð að reyna að redda þessu sem fyrst. Þangað til engar myndir :(
posted by Thorey @ 11:03   1 comments
Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile