the
 
the
miðvikudagur, september 27, 2006
Gifting Mary og Chris í Burgau, Portúgal

Ég, My Angi og Christine fórum á miðvikudagskvöldi (í síðustu viku) til Portúgals. Við fórum til að vera viðstaddar giftingu Mary Sauer sem er stangarstökkvari frá USA og Chris sem er kírópraktor.

Fimmtudagurinn fór í æfingu og leti. Veðrið var ekki það gott þannig að það var gott að geta hreyft sig aðeins fyrir átið (eða það sem átti að verða át allavega).

Á föstudeginum var farið í siglingu á sjóræningjaskipi og tók önnur leiðin 2,5 klst. Þeir sem þekkja mig vita að það er nægur tími fyrir mig til að verða virkilega sjóveik svo í hálfleik ákvað ég að yfirgefa skipið bara og skellti mér í leigubíl heim. Lá svo við sundlaugarbakkann næstu 2 tíma meðan hinir "skemmtu" sér í siglingu. Ánægð með mig þar!



Jenny Adams, ég, Angi og Christine meðan allt var enn í gúddí

Á föstudagskvöldinu var farið út að borða og fengum við einhvern portúgalskan fiskirétt sem voru eiginlega bara hörpuskeljar með sósu og smá lauk og papriku. Þar sem ég borða ekki hörpuskeljar fitnaði ég ekki þetta kvöldið. Fórum síðan c.a 20 manns á einn bar sem var algjörlega tómur. Það var ekkert verið að hafa áhrifa á sig og bara skellti liðið sér beint á gólfið og var dansað og dansað og dansað. Aldrei vitað annað eins. Held þetta sé það næsta sem hægt sé að komast "gang bang-i" ef þið skiljið... hehehe Fólk raðaði sér í eina langa röð og dönsuðu þannig uppvið hvorn annan. Þessi fjölskylda og vinir frá Chris eru þvílíkir dansarar. Gjörsamlega dýrka að dansa. Rosalega gaman að því.

Á laugardeginum var síðan brúðkaupið. Mary var rosalega falleg og Chris líka ;) Kirkjan ótrúleg alveg. Eld gömul kirkja með engu rafmagni frá því um 1400. Spilað var á selló og fiðlu og vinkona Chris söng ótrúlega fallega. Þetta var þvílíkt amerísk athöfn, ofur væmin en falleg. Byrjaði á því að Pabbi Mary blessaði þau, þá blessuðu bestu vinir þeirra þau og svo sögðu þau sín vow (sín eigin orð til hvors annars) og á endanum komu mæður þeirra beggja upp og blessuðu brúðhjónin þær. Getið rétt ímyndað ykkur væmnina og tárin sem féllu frá öllum þessar stundir. Úffff



Á leið í kirkju



Á leið út í lífið

Um kvöldið var síðan heljarinnar veisla en enn og aftur fitnaði ég nú ekki. Við biðum í örugglega 3 klukkutíma eftir því að fá að setjast og borða. Borðhaldið tók c.a hálftíma og þá bara "jæja nú verður staðnum breytt í diskótek! Jibbí!!" Ég bara HA??, með hálfan kjúklinginn enn á disknum. Þeir eru sko ekkert að eyða of miklum tíma í sitja við borð og borða. Draslið var rifið í burtu og dansskórnir teknir fram. Ekkert minna dansað þetta kvöld en kvöldið áður.



Á sunnudeginum var plönuð strandferð og áttu allir að vera með í einhverjum "Adventure Game". Fólkinu var skipt niður í um 10 4ra manna lið og lenti ég með Chris. Það vantað sko ekkert upp á keppnisskapið í honum, gjörsamlega ætlaði að vinna svo ég var drullu stressuð yfir að klúðra þessu fyrir honum. Við fórum í gegnum flestar þrautirnar meiðslalaust og náðum að vera í frontinum. Svo kom að því að hlaupa upp einhverja brekku og ég æddi af stað berfætt. Ætlaði sko ekki að eyða dýrmæta tímanum hans í að reima á mig skó. Mér tókst að verða fyrst en fæturnir eru allir skornir. Fékk verðlaun á endanum fyrir brekkuhlaupið svo fórnin var þess virði..

Mánudeginum var einnig eytt á stöndinni. Æðislegir tveir dagar verð ég að segja. Dýrka að heyra í sjónum og sleikja sólina. Algjört frelsi. Þennan dag spilaði ég strandblak, strandtennis, synnti í sjónum og klifraði í klettum. Já öxlin er ölla að koma til mundi ég segja :)
Klettaferðin fór þó kannski ekki eins og ég hafði vonast. Við vorum að reyna að komast út í sjóinn hjá klettunum til að synda að öðrum klettum en þá datt Herra Ghostbuster (segi frá honum rétt bráðum) út í og var dreginn af öldunni. Ég, Miss Pamela Andersson, vildi að sjálfsögðu bjarga honum en var dregin út í líka. Skinnið af vinstri fætinum varð eftir á steininum. Ég er öll hrufluð og það er ekki sjón að sjá mig. Ég komst þó útí á endanum, synti að klettinum, klifraði upp hann (ca 4-5m) og stökk útí. HRIKALEGA GAMAN!!

En þá var komið að því að drífa sig í sturtu, pakka og bruna út á flugvöll. Frábærri ferð lokið.

En að Ghostbösternum. Þetta er ástrali sem hefur það að atvinnu að hrekja vonda orku og anda útúr húsum og jafnvel fólki.. Í Burgau sváfum við í 200 ára gömlu húsi og voru Chris og Mary í einu herbergjanna. Þau sváfu ekkert fyrstu 3 næturnar, bara í 20 - 30 mín í einu. Herra GB kíkir á herbergið og hárin á líkamanum gjörsamlega risu. Hann taldi gamla anda vera þarna inni og fór með svakalegt ritual til að hrekja þá út, hjálpa þeim að komast á annan stað. Það sem eftir var af ferðinni sváfu þau alltaf í 9 tíma straight. Trúið nú sem trúa vilja.
Einnig voru vinir Chris og Mary þarna sem höfðu reynt að eignast barn í heilt ár án árangurs. Þau kalla á GB og fyrsta sem hann segir þegar hann kemur heim til þeirra er að hún verði aldrei ólétt í þessu húsi. Hann fer með vísur og brennir kyndla og tveimur vikum seinna verður mín ófrísk. Jahá.

Þið getið tékkað á gaurnum hérna:

Herra Ghostbuster, Kim White

Einnig er fleiri myndir úr ferðinni hér
posted by Thorey @ 22:30   2 comments
þriðjudagur, september 26, 2006
Blogg á leiðinni

Var að koma aftur til Leverkusen eftir 5 daga ferð til Portúgals. Ég þarf aðeins að ná upp lærdómi og síðan sest ég og blogga um þessa frábæru ferð. Síðan er bara alvaran að hefjast!!
posted by Thorey @ 20:30   3 comments
fimmtudagur, september 14, 2006
SPRON

Í gær undirritaði ég styrktarsamning hjá SPRON sem gildir út árið 2008. Þetta er sérstaklega eftirtektarvert þar sem ég er að koma úr meiðslum og ekki algent að fyrirtæki styrki einstaklinga eftir mikil meiðsli. Þetta er skiljanlega því mikil hvatning fyrir mig og auðveldar mér verulega að komast aftur í gírinn. Ég hlakka orðið rosalega til að fara út og byrja að æfa í Leverkusen með öðrum stangarstökkvurum.

Takk kærlega fyrir mig SPRON
posted by Thorey @ 11:03   10 comments
miðvikudagur, september 13, 2006
Lilli bró 25, Guðrún mágkona 34 og fullt af kveðji kveðj

Til hamingju með afmælin í gær og takk fyrir gott kökuboð Kristinn :)

Nóg að gera hjá mér að kveðja fólk. Bæði vegna þess að ég er að fara út á mánudaginn og einnig vegna þess að aðrir eru að flytja sömuleiðis. Til dæmis erum við 18 í TMC vinahópnum mínum og aðeins 6 verða á landinu í vetur. Hinir eru farnir í framhaldsnám erlendis. Það er ekkert verið að halda eitt kveðjuparty heldur hittumst við til að kveðja einn og einn :) Alltaf gaman að hafa ástæðu til að hittast.

Fullt af skemmtilegu í gangi í dag. Er til dæmis að vinna í forvarnarverkefni sem sýnt verður í öllum 9.bekkjum landsins. Alltaf gaman að láta gott af sér leiða.

Svo er það að vaka í kvöld. Magni er búinn að standa sig alveg þvílíkt vel og á bjarta framtíð fyrir höndum. Gaman að því.

Hafið það gott í dag.
posted by Thorey @ 11:18   3 comments
sunnudagur, september 10, 2006
Bissí helgi á enda

Já letin tók fljótt enda og byrjaði brjálæðin á föstudagskvöldinu. Fór þá í party til Ylfu og aðeins í bæinn þar sem við tókum létt tjútt á gólfinu. Á laugardagsmorgninum fór ég svo með Silju í Rauða Kross söfnunina og gengum við til góðs. Lentum á ótrúlegasta fólki og á einum stað var party enn í gangi frá því kl 23 kvöldið áður (samkvæmt nágrönnum). Við Silja gátum ekki annað en velt fyrir okkur hvað við værum greinilega orðnar gamlar eitthvað þar sem við höfðum mætt í partý um hálf ellefu og vorum komnar hálf þrjú aftur heim og fannst það voða passlegt.... Svo á öðrum stað kom einn til dyra blindfullur á nærbuxunum.

Eftir gönguna góðu fór ég á heilsusýninguna þar sem ég var í bás ÍSÍ. Fannst sýningin fín en súkkulaðikakan sem var úr káli, kartöflu, eggaldin, eggi og kakó standa uppúr. Bara fáránlega góð og smakkaðist alveg eins og venjuleg súkkulaðikaka. Bás ÍSÍ var ágætur en ég hefði samt viljað bæta og laga eitt og annað.

Eftir sýninguna dreif ég mig heim í föt og fór í matarboð til Lindu sem ég kynntist á Hönnun í sumar. Ég, hún og Olga borðuðum dýrindis humar og nautasteik í boði Lindu. Þvílíka snilldin! Takk fyrir mig Linda.

Dagurinn í dag er svo búinn að fara í Heilsusýningu og svefn.. Lagði mig í 3 tíma þegar ég kom heim af henni. Frekar búin á því. Ætla svo að taka til hjá mér og kannski kíkja í skólabók en markmið vikunnar er að taka 2 vikur í námi því næstu viku eyði ég í Portúgal og ætla ég ekki að hafa hangandi yfir mér einhver skiladæmi.

Best að setja í gang.
posted by Thorey @ 19:00   0 comments
miðvikudagur, september 06, 2006
Leti

Ég hætti að vinna um mánaðarmótin og er búin að hafa það ofur gott síðan. Ég er ekki að fatta að sumarið sé búið. Þegar ég horfi tilbaka á það þá skil ég ekki hvert það fór. Ég var gjörsamlega á fullu allt sumarið. Byrjaði hvern dag milli 06 og 07 og var aldrei komin heim fyrr en um kl 20-22. Þá fór ég bara beint í rúmið. Ég fann samt ekkert svo mikið fyrir álaginu heldur naut hvers dags í rauninni. Já þetta hljómar kannski ótrúlega miðað við stöðuna á líkamanum á mér. Það er víst að það er hægt að láta meiðsli vinna með sér og nýta þau til að gera aðra hluti. Merkasta uppgötvun ársins hjá mér er einmitt sú að það er til líf fyrir utan sportið og ég kvíði nú engu lengur þegar sá tími kemur að ég leggi stönginni. Ekki skilja það svo að ég sé tilbúin til að hætta, langt í frá. Ég ætla að njóta þeirra ára sem ég á eftir í íþróttinni til fullnustu, kreista út síðasta sentimeterinn og opna síðan nýjan æfikafla með tilhlökkun en ekki hræðslu.

Ég hef líka verið að hugsa mikið um hvað það eru mikil forréttindi að geta menntað sig. Að geta hoppað inn í nýtt starf í því sem maður hefur verið að læra er ómetanlegt. Ég hefði ekki viljað vinna í prentsmiðjunni Odda enn eitt sumarið eins og ég gerði þegar ég var unglingur, ekki viljað afgreiða í búð eða vinna önnur leiðinleg láglaunastörf. Í staðinn fékk ég að vinna við það sem mér finnst skemmtilegt og leggja aura inn á bankabók :) Já það borgaði sig að hjakkast í náminu.

Nú eru bara 12 dagar þar til ég fer út aftur. Þá verð ég búin að vera heima í 9 og 1/2 mánuð. Það er yndislegt að hafa átt þennan tíma heima, hitt vini og ættingja, eignast nýja og hlaðið batteríin fyrir komandi ár.
posted by Thorey @ 18:00   5 comments
Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile