miðvikudagur, september 13, 2006 |
|
Lilli bró 25, Guðrún mágkona 34 og fullt af kveðji kveðj
Til hamingju með afmælin í gær og takk fyrir gott kökuboð Kristinn :)
Nóg að gera hjá mér að kveðja fólk. Bæði vegna þess að ég er að fara út á mánudaginn og einnig vegna þess að aðrir eru að flytja sömuleiðis. Til dæmis erum við 18 í TMC vinahópnum mínum og aðeins 6 verða á landinu í vetur. Hinir eru farnir í framhaldsnám erlendis. Það er ekkert verið að halda eitt kveðjuparty heldur hittumst við til að kveðja einn og einn :) Alltaf gaman að hafa ástæðu til að hittast.
Fullt af skemmtilegu í gangi í dag. Er til dæmis að vinna í forvarnarverkefni sem sýnt verður í öllum 9.bekkjum landsins. Alltaf gaman að láta gott af sér leiða.
Svo er það að vaka í kvöld. Magni er búinn að standa sig alveg þvílíkt vel og á bjarta framtíð fyrir höndum. Gaman að því.
Hafið það gott í dag. |
posted by Thorey @ 11:18 |
|
|
3 Comments:
mér finnst eiginlega leiðinlegast að hafa farið svona snemma út því þá missir maður af öllum TMC-kveðju-hittingunum hehehe :)
hehehe já slæmt fyrir þá sem fara fyrstir.. :)
Best fyrir okkur sem verðum eftir á klakanum - við komumst í öll boðin, hehe:)
Skrifa ummæli
<< Home