the
 
the
miðvikudagur, júlí 05, 2006
29 og 5 daga

Já maður nálgast ellismellatöluna 30....
Átti semsagt afmæli og hélt þetta fína party fyrir þá sem áttu leið hjá. Tókst bara ágætlega og ég skemmti mér allavega vel :)

Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá er ég voða löt að blogga núna. Mér finnst bara hálf glatað að blogga þegar ég er heima. Finnst ég ekkert þurfa að segja fólki fréttir þegar símtólið er við höndina.

En ég ætla þó að segja ykkur frá stöðunni á öxlinni. Hún er nefninlega fín. Er allt að koma og ég vona að planið mitt að byrja að stökkva í oktober muni standast. Finnst vera að koma smá rennihreyfing í kúluna loksins.

Æfingar hafa líka gengið bara furðu vel þrátt fyrir þetta hundleiðinlega veður. Laugar bjarga mér þar, því ég get skroppið inn þegar ég nenni ekki að drullumalla í krikanum. Samt svo fyndið hvað Krikinn er albestur. Mér þykir svo ótrúlega vænt um þetta pleis.

Jæja ætla að halda áfram að vinna. Líkar mjög vel hérna á Hönnun og hef fegnið fullt af skemmtilegum verkefnum.
posted by Thorey @ 14:18  

6 Comments:

At 2:26 e.h., Blogger Rikey Huld said...

Til hamingju með afmælið aftur og takk fyrir frábært partý:)

 
At 8:59 f.h., Blogger Hildur said...

Hum...mér finnst nú algjört must að geta lesið fréttir af þér. Finnst þú eiginlega verða að vera dugleg að blogga jú eða senda mér email í staðin...

Knús og hlakka til að hitta þig eftir bara nokkrar vikur

 
At 9:30 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með 29 árin og takk fyrir æðislegt partý!

Ásdís Jóh.

 
At 1:20 e.h., Blogger Thorey said...

Já takk sömuleiðis fyrir komuna. Gott að þið skemmtuð ykkur vel líka :)

Hildur ég hlakka líka geggjað til að hitta. Tíminn flýgur og við sjáumst fyrr en varir :)

 
At 2:18 e.h., Blogger Hildur said...

Takk fyrir samverustundirnar á Íslandi. Það var æðislegt að þú gast hitt okkur síðasta kvöldið. Hlakka til að heimsækja þig í þýskalandi.

 
At 1:26 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þórey, hvar ertu??

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile