the
 
the
fimmtudagur, ágúst 31, 2006
.....

huhumm já það er víst að ég get líklega bara bætt mig héðan af. Hljóp 100m á 13,74 og svo 400m á 64,30. Einkar lélegur árangur það. Já ákvað að skella mér bara í 400 þótt ég hafi aldrei einu sinni hugsað um að hlaupa þá vegalengd enda eru 400m ansi fjarri minni grein. Þrátt fyrir lélega tíma er gott að vera komin með tíma til að miða við og ég ætla að reyna að keppa eitthvað sem fyrst aftur. Ég get nú ekki sagt að ég sé í einhverju keppnisformi heldur, ný farin að fara í gadda og varla búin að taka sprettæfingar. Þetta var samt alveg rosalega gaman og veðrið var alveg geggjað.

Hitti hana Hallberu skvís og Smárann hennar og við borðuðum dýrindis kjúkling sem hún hafði eldað. Æði að hitta þau en það er svo fyndið með hana Hallberu að sama hve sjaldan ég hitti hana er alltaf eins og ég hafi hitt hana síðast í gær.
posted by Thorey @ 10:14  

5 Comments:

At 4:48 e.h., Blogger Hafdís Ósk said...

Það er ekki séns að ég kæmist svona hratt um þessar mundir og finnst þetta því bara einkar góður árangur hjá þér! Líka gaman að spreyta sig í öðrum greinum.
Ég ætlaði alltaf að halda öðruvísi frjálsíþróttamót hérna í den þar sem enginn fengi að keppa í grein sem hann væri góður í - hugsa að það gæti í mörgum tilvikum verið skemmtilegt!

Hugsa til dæmis að Silja tæki sig vel út í hástökki ;)

 
At 6:41 e.h., Blogger Hildur said...

úff maður verður bara þreyttur af að lesa þetta...hihi sko líkamlega þreyttur...púff...

annars alltaf gaman að hitta vini sína sem maður hefur ekki séð lengi...

knús

 
At 9:26 e.h., Blogger Thorey said...

hehe já góð hugmynd Hafdís. Um að gera að halda þannig mót, það væri snilld.

 
At 1:05 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

ææ, það væri slæmt mót. Ég yrði látinn dúsa í stangarstökki eða sleggju.

Annars er 400m tíminn þinn ekki svo galinn. Þú átt þá grein bara inni ef öxlin heldur áfram að vera með eitthvað vesen ;)

 
At 12:50 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

off white jordan 1
curry 7 shoes
yeezy 350
off white
yeezy boost 700
off white jordan 1
hermes birkin
yeezy
curry 8
yeezy 700

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile