fimmtudagur, júní 22, 2006 |
|
Brúðkaupið í Bolungarvík
var hreinlega geggjað. Katrín og Steinar, meðlimir í TMC, voru að gifta sig síðustu helgi á Bolungarvík. TMC gengið skellti sér á kjálkann og var stemningin hreinlega ótrúleg. Þessi hópur er nú bara einstakur!! Alltaf stuð hjá okkur :)
Vantaði þó Silju og Kristján enda nýbakaðir foreldrar. Til hamingju Silja og Kristján með JR og til hamingju Katrín og Steinar með hjónabandið!!
Fleiri myndir úr brúðkaupinu má sjá í myndavélinni minni og á síðu Danna... |
posted by Thorey @ 20:44 |
|
|
miðvikudagur, júní 21, 2006 |
|
OMG
Á laugardaginn er mér boðið í:
1 barnaafmæli 1 25 ára afmæli 1 30 ára afmæli 1 giftingu 2 útskriftir
Gjafir = fer á hausinn.. |
posted by Thorey @ 12:50 |
|
|
sunnudagur, júní 11, 2006 |
|
Staðan
Frakklandsferðin var mjög fín fyrir utan kuldann. Ég gisti semsagt í París á leiðinni til og frá frænku og ég var bara skjálfandi báðar næturnar. Tók svo túr um París sem endaði mjög fljótlega yfir heitum kaffibolla inn á kaffihúsi. Einfaldlega of kalt fyrir mig. Burkni: ég fór upp á Pui Du Dome þegar ég heimsótti frænku mína haustið 03. Það er rosalega fallegt umhverfi þarna í kring og gaman að labba þarna upp. Ég var í svo mikilli letiferð núna að fjallganga kom ekki til greina... Mun þó vonandi kíkja aftur þarna upp fljótlega.
Frænka er svo mikill snillingur í eldhúsinu að ég held hún slái alla kokka út. Hún hefur stúderað óteljandi uppskriftabækur til að elda handa familíunni sinni. Ég fékk andabringur í appelsínusósu og einnig lúðu í kryddblandaðri kókosmjólk. Ég vorkenni ykkur að fá ekki að smakka eldamennskuna hennar... hún er alveg einstök!!!
Ég er nú búin að vera heima í viku og er byrjuð að vinna. Mér list rosa vel á nýju vinnuna og vinnufélagana. Lenti strax í kvennapottapartýi eftir vinnu á föstudag og var aðeins meira fjör en ég hafði búist við :) Ég er líka að komast inn í smá rythma með æfingar og náði ég alveg ágætis æfingaviku. Nú fer rútínan mín að verða ljós og æfingaplanið og ætti því formið að fara aðeins upp á við héðan af. Öxlin er líka öll að koma til en ég get orðið lyft hendinni 134° fram.
Ég gleymdi snúrunni til að taka myndir af myndavélinni og setja á tölvuna í Þýskalandi og er ég svo fúl yfir því. Verð að reyna að redda þessu sem fyrst. Þangað til engar myndir :( |
posted by Thorey @ 11:03 |
|
|
|
|