miðvikudagur, janúar 16, 2008 |
Ólympíublogg |
Jæja þá hefur bæst við enn ein vefsíða fyrir bloggrúntinn ykkar. Ólympíuhópur FRÍ (Silja, Óðinn, Beggi, Ásdís og ég) munum halda úti vefsíðu til að fylgjast með hvoru öðru í undirbúninginum og til að leyfa ykkur að fylgjast betur með okkur. Síðan er hér Endilega verið svo dugleg að kommenta.
Annars ekkert nýtt að frétta. Vésteinn er á fullu að finna mót handa mér en það er voðalega lítið um innanhúss mót í Evrópunni. En eins og ég sagði er það í lagi því þetta verður jú bara æfingatímabil hjá mér.
Æfingar ganga annars bara þokkalega. Hef verið dugleg að lyfta síðustu vikur og er öll að styrkjast. Ég er byrjuð á hrikalegum heilsukúr og er að taka ýmis jurtameðul allan daginn. Við erum sko að tala um grænar klósettheimsóknir... :) Tek núna duft sem heitir Green Phyto og á að gefa manni orku og svo Chloryllu sem er blaðgræna og á að auka súrefnisflutning og þar með endurhæfingu líkamans. Veitir nú ekki af því. Chloryllan á meira að segja að eyða svita- tá og andfýlu.
Mót um helgina í höllinni en ég mun ekki taka þátt í því. Hvet alla til að mæta og kíkja á flottu og efnilegu krakkana sem verða í fremstu röð eftir nokkur ár. |
posted by Thorey @ 22:48 |
|
|
|
|
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home