the
 
the
sunnudagur, nóvember 11, 2007
Kalt... og löt
Sjæse hvað ég er ekkert búin að gera um helgina. Tja, jæja ég fór í áhugaleikhús á föstudagskvöldið með Angi og eftirá borðuðum við pizzu með miklum hvítlauk... namm.
Gær var bara æfing og sauna og svo heim í leti... og er búin að vera heima í leti síðan. Er að reyna að sannfæra sjálfa mig um að fara á körfuboltaleikinn í dag en ég veit ekki hvort ég komi mér útúr húsi. Sjáum til.
Í þessari leti minni tókst mér þó að setja myndir í header og profile hér á blogginu. Hinar duttu út því þær voru á HÍ svæðinu mínu en eins og þið vitið er ég hætt (í bili allavega) þar. Svo föndraði ég nokkur jólakort.. Ég er svo ekki týpan í að föndra jólakort. Hef aldrei gert það áður og mun líklega aldrei gera það aftur, ekki alveg það skemmtilegasta að mínu mati. Ætlaði að taka jólakortin þetta árið alveg með trompi, þ.s ég hef haft lítinn tíma til að skrifa þau áður, og föndra öll, en vó, nei takk. En ég hef lært að meta föndruðu kortin ykkar sem þið hafið sent mér í gegnum árin..

12 skrefa stökkæfing í fyrramálið og ég er að gæla við að kíkja í gaddana. Nú eru 5 vikur frá Cortison sprautunum og ég er enn í lagi. Ég er samt mjög hrædd gaddaskóna því ég vil að sjálfsögðu haldast heil og þeir hafa verið algjört eitur á lappirnar á mér hingað til.
posted by Thorey @ 13:15  

5 Comments:

At 1:47 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

hahaha það er ekkert smá langt síðan maður föndraði jólakort... hehe ég skal föndra með þér þegar þú kemur heim... hehe

annars æðislegt að heyra hvað gengur vel að æfa skvís! gangi þér vel í göddunum!!! láttu svo vita hvernig gekk...

kv.
Silja

 
At 3:23 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Flottar myndirnar!!!
Úff, ég föndraði öll fermingarboðskortin mín. Það var heldur betur vinna, en þau voru líka flott ;)
Gangi þér vel að föndra og æfa :)
Kv. Sólveig Margrét

 
At 7:35 f.h., Blogger Thorey said...

Vó dugleg að föndra fermingarboðskortin!!

Ok Silja við tökum jólakortaföndursrispu í des. Nú líklegra skemmtilegra að gera þetta saman og hlæja smávegis :)

 
At 1:18 f.h., Blogger zzyytt said...

air jordans
lebron 15
asics shoes
yeezy shoes
mlb jerseys
basketball shoes
yeezy boost 350 v2
kevin durant shoes
vapormax
adidas ultra boost

 
At 12:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

supreme clothing
bathing ape
off white
bape outlet
supreme clothing
kd shoes
yeezy 350
off white
curry shoes
hermes outlet

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile