mánudagur, nóvember 12, 2007 |
|
Ah gekk ekki alveg nógu vel. Stökk 4,10 og var bara á felgunni eftir það. Kiknaði allaf í hnénu og náði ekki uppstökki. Vetraræfingarnar sitja meira í mér en ég var að vona. Stökk ekki í göddum en tók nokkrar hraðaraukningar og uppstökkæfingar í þeim og fann ekkert til! Ákvað að láta það duga til að byrja með, verð að vera skynsöm. Stekk næst á fimmtudaginn og verð þá kannski aðeins lengur i göddunum.
Lyftingar seinni partinn svo ég ætla að fara að leggjast með tærnar uppí loft... |
posted by Thorey @ 12:08 |
|
|
|
|
1 Comments:
Gott hjá þér að vera skynsöm! þetta kemur allt...
En já við ættum að geta flissað yfir jólakortunum ... hehe
Kv. Silja
Skrifa ummæli
<< Home