the
 
the
miðvikudagur, janúar 17, 2007
Já já kvart kvart. Ég kann eiginlega ekki við svona kvart í blogginu mínu. Hef vanalega bara þagað hér ef eitthvað hefur verið að angra mig og held ég haldi því eitthvað áfram. Óþægilegt að kvarta...

Hef það fínt í dag. Öxlin er betri og ég ætla að stökkva aftur á föstudaginn. Kannski 4m verði mér auðveldari þá ;)

Silke kíkt i heimsókn í kvöld með kjól til að sýna mér með sér. Rosa fínn svartur síðkjóll sem hún ætlar að vera í á Ball des Sports þann 3.feb. Þá mun ég vera í Monaco kjólnum mínum! Úllala. Silke var boðið á þetta ball og hún bauð mér með. Heppin ég. Þarna verða allar helstu íþróttastjörnur Þýskalands síðastliðið ár. Má búast við þýska íshokkílandsliðinu en þeir urðu heimsmeistarar, þýska fótboltalandsliðinu, Schuma og fleirum. Þetta verður mjög áhugavert!

Og hér er ein ástæða af hverju maður á ekki að kvarta.
posted by Thorey @ 22:51  

1 Comments:

At 3:05 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

já það er einmitt málið ganga með þeim sem hafa ekkert jafn gott og þú eru jafnvel að mæta þeim mesta bullbúningi ... þessi unga sterka stelpa sendi mig djúpt í hugsun um margt...gangi þér hið besta ekkert annað

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile