the
 
the
miðvikudagur, janúar 24, 2007
"Hvað er að frétta?"
Heyrði að það hafi verið sagt í þessum dálki í fréttablaðinu í dag að ég væri að undirbúa mig fyrir EM innanhúss. Hún hefur eitthvað misskilið mig stelpan sem tók viðtalið en ég það sem ég vildi segja var að ég bindi litlar vonir við að geta tekið þátt í mótinu. Ykkur að segja þá held ég að líkurnar á að ég keppi þar séu innan við 10%...

Ég er búin að vera mjög slæm í öxlinni síðan á mánudag. Svona er maður gáfaður eða þannig. Ég semsagt stökk í fyrsta skipti á 12 skrefum á mánudaginn en ákvað að láta þar ekki við sitja heldur fara bara og kýla á smá bekkpressu. Nei það var heldur ekki nóg heldur fór ég í gær að hanga í tæki sem er stöng sem sveiflast milli láréttar og lóðréttar stöðu og sveifla mér afturábak á hvolf í því. Fór svo og klifraði í kaðli!! Þetta var aðeins of mikið af því góða og er ég að súpa seiðið á því núna. Held ég stökkvi ekki fyrr en í byrjun næstu viku aftur. Held að viljinn sé aðeins að yfirstíga skynsemina þessa dagana.

Já þeir hlógu eiginlega af mér í gær Tim og Lars. Skutu því á mig uppúr þurr að ég væri búin að brosa meira í dag en í gær (mánudag). Þeim fannst ég eitthvað svo voða einbeitt þarna á mánudaginn. Svo var Angi að segja mér að vinur 0kkar hafi farið og spurt hana hvort mér liði eitthvað illa þessa dagana því ég væri svo ofur einbeitt á æfingu..... Ég hló bara þegar hún sagði þetta við mig en það er satt að ég er varla búin að líta til hægri né vinstri síðustu daga.

Ég ætti kannski að reyna að slaka aðeins á, ólympíuleikarnir eru ekki fyrr en eftir eitt og hálft ár! :)
posted by Thorey @ 09:31  

7 Comments:

At 11:37 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já það er ekki alltaf gott þegar metnaðurinn er skynseminni sterkari.

 
At 1:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Þórey.
Vildi bara benda þér á þessa síðu http://www.myp2p.eu/Other.htm, þarna er hægt að horfa á strákana okkar spila live. Við verðum að standa saman, íslendingar í útlöndum :) Gangi þér annars vel í æfingunum.
kv frá Frankfurt

 
At 2:28 e.h., Blogger Thorey said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

 
At 7:42 e.h., Blogger Thorey said...

Hæ Edda Karen og takk kærlega fyrir kommentið og ábendinguna. Ég kíki á þetta!
Annars fékk ég þá flugu í hausinn í dag að skella mér bara á leik.. það væri ekki hægt að plata þig með??? Annars þá auglýsi ég hér með fólki til að skella sér með á leik!!

Reyndar svolítið langt fyrir þig að fara og dýrt en það væri geggjað.. :)

 
At 8:27 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Fyrr má nú rota en dauðrota - æfingarlega séð - en p er til í að skella sér á leik, eða þannig !!
M

 
At 9:36 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hurru, ég er barasta á leiðinni á leikina um helgina, vantar þig miða? Held ég lofi ekki upp í ermina á mér en við erum örugglega með auka miða.. endilega hringdu í mig ef þú ert ekki nú þegar komin með miða og á leiðinni að styðja strákana okkar... 0172 680 98 25 :) Áfram Ísland!!

 
At 12:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

supreme clothing
bathing ape
off white
bape outlet
supreme clothing
kd shoes
yeezy 350
off white
curry shoes
hermes outlet

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile