the
 
the
sunnudagur, október 01, 2006
Fyrsta vikan í Leverkusen að líða

Þá er ég búin að vera hér í viku bráðum. Vikan hefur farið í tiltekt og svo lærdóm núna um helgina. Ég semsagt er búin að vera að þvo fötin mín sem Angi hafði pakkað niður í kjallara. Búin með hvorki meira né minna en 10 vélar og á eftir c.a 3 í viðbót. Samt er ég búin að henda heilli svartri ruslatunnu af fötum.
Ég þreif líka baðherbergið og sturtuna 4x. Hún var nánast orðin gul á litin í stað þess hvíta. Ojoj.
Ég kíkti síðan á bílasölu í gær og var auðvitað heit fyrir einum kagganum en ég held ég láti hann bíða aðeins. Samt komi tími á að ég fái mér bíl, nenni ekki þessu betli hérna endalaust. Ætla að reyna að finna einhvern góðan en ódýran.
Svo hef ég ekkert gert í dag nema læra og láta mér leiðast. Algjörlega dottin úr formi með að vera svona mikið ein. Ég fór meira að segja ein á steikhús í dag og fékk mér fíle steik... Nammm.

Sakna ykkur nú pínu þarna heima í augnablikinu...
posted by Thorey @ 18:00  

5 Comments:

At 9:45 f.h., Blogger Hildur said...

Já það er örugglega svolítið skrítið að fara frá því að vera umvafinn fólki öllum stundum í það að vera ein öðru hvoru. Þú átt eftir að venjast þessu fljótt aftur. Talað um 21 dag að venjast nýjum aðstæðum svo þú átt bara nokkra daga eftir :) Annars gaman að heyra frá þér...

 
At 9:46 f.h., Blogger Hildur said...

p.s. gleymdi að segja endilega keyptu þér bíl. Þú ert enga stund að skjótast hér uppeftir yfir helgi (eða virka daga ef þú vilt) á bílnum. Vildi óska að ég ætti bíl. Væri pottþétt búin að koma oft í heimsókn...Mundu bara 130 km hámarkshraða hérna megin við landamærin :)

 
At 10:00 f.h., Blogger Thorey said...

Sömuleiðis æði að heyra frá þér Hildur mín.
Já ég held ég venjist þessu fljótt aftur og góð kenning þessi með 21 dag. Finnst það passa við mig allavega.

Já og bíllinn. Held ég drífi í þessu bara :)

 
At 12:42 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þú ferð nú ekki að hætta við að kaupa þér almennilegan bíl núna. Hvenær ætlarðu þá að gera það...?
Drífðu í þessu....svo kaupi ég hann af þér þegar þú kemur heim ;)
P.s.
Bens með sóllúgu takk....

Kv. Albert

 
At 12:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já eflaust vonbrigði að fara svona út aftur en á móti kemur að þú verður stutt stopp í þetta skiptið- þetta verður enga stund að líða og þú verður komin heim áður en þú veist af :)

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile