the
 
the
þriðjudagur, maí 24, 2005
Plötuð uppúr skónum....

Ég var að uppgötva ebay. Ákveð nú að kíkja og gá hvort eitthvað fáist með Custo Barcelona merkinu sem mér finnst svo flott. Jújú hellingur alveg og ég voða ánægð með sjálfa mig að ná í kjól á aðeins 4000kr og bol á 1500kr. Þegar ég er svo að borga í gegnum netið sé ég nafnið á seljandanum. Hún hét Xinyu Tang. Þið vinir mínir sem fóruð í útskriftarferðina síðasta sumar vitið hvað það þýðir....
Vá alveg sko svekkelsi mánaðarins (fyrir utan 4,10 í fyrradag ;)...)

Ég stökk í dag á fullri atrennu og á stóru stöngunum. Það gekk bara fínt. Eiginlega bara alveg týpísk fyrsta æfing sem er bara jákvætt. Stekk svo aftur á fimmtudaginn og keppi svo á sunnudaginn í Weissach hér í Þýskalandi.
posted by Thorey @ 20:38  

6 Comments:

At 8:03 f.h., Blogger Hildur said...

Hey minn ekki vita hvað það þýðir..ljóska í Danmörk sem fór ekki í neina útskriftarferð en samt að drepast úr forvitni.

Gangi þér vel að keppa á sunnudaginn

 
At 9:20 f.h., Blogger Ásdís said...

Og keyptirðu fötin eða slepptirðu því??? Ég er mjööög forvitin ;)

 
At 12:23 e.h., Blogger Thorey said...

Þetta er eftirlíking!!! OHHHHHHH Hver kaupir eftirlíkingu á 4000kr! Shitt hvað þessi gella stendur í miklum business á netinu...

Ég var búin að borga flíkurnar svo ég býst við þeim í póstkassanum á næstu dögum.

 
At 4:55 e.h., Blogger Katrin said...

æi svekkelsi... smá peningaplokk ef þetta er ekki ekta, kemur í ljós þegar pakkinn kemur ;) Gangi þér vel í stökkinu!

 
At 10:34 f.h., Blogger Hafdís Ósk said...

Sveinbjörn keypti einmitt tvo Custo boli handa mér úti - þeir eru mjög flottir ennþá núna ári seinna og líta mjög vel út...
Gucci taskan stendur líka enn fyrir sínu...;)
Ég er reyndar ekki merkjastelpa svo að það er kannski ekkert að marka mig...

 
At 12:19 e.h., Blogger Thorey said...

Já eftirlíking er svosum í lagi ef það er quality í því. Mér fannst bara frekar mikið að borga 4000 kr fyrir það... + að ég var svo stolt af mér að vera svona sniðug, þ.e að ná mér í ekta Custo boli á aðeins...

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile