mánudagur, maí 09, 2005 |
|
JIBBBBÍ
Það hafðist og ég held ég nái þessu. Vona það allavega. Ég verð samt að segja að mér fannst prófið bara frekar erfitt. Kennarinn kom með allar erfiðustu útfærslurnar á dæmunum. Frekar fúlt og þá tekur þetta auðvitað óratíma sem leiddi til þess að ég sleppti alveg einu dæmi :( En vá þvílíkur skandall ef ég færi að falla í léttasta stærðfræðikúrs verkfræðinnar!! Nei kemur ekki til greina!!
Nú tekur við stuttur svefn og svo æfing. Kannski ég taki svo til hérna hjá mér í kvöld... kominn löngu tími til..... |
posted by Thorey @ 15:22 |
|
|
4 Comments:
Til hamingju með þetta :) Njóttu þess að vera búin. Já þú varst alltaf svo lengi í prófum, man það núna...hihihi
Til hamingju Þórey með að vera búin í prófum. Ég frestaði síðasta prófinu til sumarsins svo ég er búin líka- það fylgir því bara ekki jafn mikil ánægja hjá mér þar sem mín bíða sumarpróf :/
Til hamingju! Alltaf jafn góð tilfinning að klára síðasta prófið ;) Efast ekki um að þú hafir rúllað þessu upp...
úffff til hamingju að vera búin skvís... hringdu í mig áður en þú ferð...
Silja
Skrifa ummæli
<< Home