the
 
the
fimmtudagur, mars 03, 2005
Noh bara 2 blogg í dag :)

Það verður sko fjör á þessum bæ um helgina (þótt aðal fjörið sé auðvitað í Madrid!!!) Við aumingjarnir, sem ekki komumst til Madrid ætlum að hittast og horfa á mótið saman. Alina ætlar að sjálfsögðu að hvetja sinn mann (Tim) og ég ætla líka að hvetja minn mann...... minn Íslending ;)
GO GAUTI!!!!!
Jú svo að sjálfsögðu hvet ég líka vini mína, þessa yndislegu Þjóðverja..... Danny hætti reyndar við að fara því hann er veikur svo Björn Otto fer fyrir hann. Svo Tim, Björn og Fabian keppa.

Ég hef verið að velta svolítið fyrir mér þýska tungumálinu, enda ekki seinna að vænna. Það er ýmislegt í tungumálunum sjálfum sem eru bein misrétti. Í þýsku er karlkynsgreinir der, kvenkyns greinir die og hvorukyns er das. Junge=strákur er því der Junge en Mädchen=stelpa er das Mädchen!!! Hversu óréttlátt og hallærislegt er þetta!!!!! Það er nokkuð greinilegt að misrétti milli kynjanna á sér rætur að rekja frá upphafi mannsins..... líklega bara alveg hjá öpunum!!! GLATAÐ
posted by Thorey @ 14:13  

1 Comments:

At 12:19 e.h., Blogger Hildur said...

HÆ sæta!!!!

Góða helgi

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile