the
 
the
fimmtudagur, febrúar 10, 2005
Til hamingju með afmælið Silja Hrund!!!!
Stelpan er orðin 25 ára :)

Það þýðir ekkert annað en að halda áfam með lífið þrátt fyrir skellinn í gær.
Ég fer aftur til Karlsruhe á morgun til að hitta lækninn. Ég ætla síðan að eyða helginni þarna, gista fyrst hjá foreldrum Angie í Weinheim og á laugardeginum fer ég til Ríkeyjar og við kíkjum eitthvað út um kvöldið. Á sunnudeginum er frekar stórt frjálsíþróttamót í Karlsruhe (sem ég átti að keppa á... :(..) og ég kíki kannski þangað að horfa á og það er aldrei að vita nema Ríkey komi með mér. Svo verð ég samferða liðinu aftur heim eftir mótið. Stefnir semsagt í ansi góða helgi!!
posted by Thorey @ 13:58  

3 Comments:

At 1:54 e.h., Blogger Rikey Huld said...

Þetta verður rosaleg helgi, eins gott að þú verðir ready:)

 
At 8:10 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Takk Þórey mín ;)

Kv,
She

 
At 3:06 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Kemst thú á midvikudagskvöldid Thórey?? kv.Katrín

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile