the
 
the
sunnudagur, desember 14, 2003
Ich bin zu hause :)

Þá er maður komin heim í hafaríið. En nú er ég frekar hissa þó svo að uppátæki Davíðs og co ætti nú ekki að geta komið manni á óvart. Hugsið ykkur hræsnina. Davíð hneykslast yfir uppátæki bankamanna (sem var fáránlegt uppátæki) og vogar sér svo að skammta sjálfum sér 240 millur. Ég hef reyndar haldið þessum vef fyrir utan pólitík því ég veit ekki hvursu mikið ég eigi að bland saman sporti og pólitík, þ.e að tala um það á sama vefnum. Ég ætla því ekki að hafa mín orð um þetta eftirlaunafrumvarp hér lengri en ég bendi á vef uvg

Allavega, það er samt gott að koma heim. Ég er búin að slaka ansi vel á og búin að sofa mikið. Í gær kíkti ég í heimsókn til Alberts bróðurs en hann, Guðrún og börnin þeirra eru ný flutt í nýja glæsilega íbúð og óska ég þeim til hamingju með það :)
posted by Thorey @ 15:23  

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile