the
 
the
miðvikudagur, janúar 31, 2007
Útlit síðunnar
Útlit síðunnar fer að fá form sem ég sætti mig við. Fannst síðasta lúkk alveg glatað en það eru ekki mörg flott útlit finnst mér fyrir blogger síður.
Ég fer að fá nýjar myndir af mér að stökkva sem ég ætla að setja í header enda er þessi mynd vel gömul orðin.

Sprauturnar í gær gengu eins og í sögu. Ég tek því samt rólega nætu daga því ég ætla ekki að skemma meðferðina.

Þegar ég talaði um að enginn væri búinn að koma að heimsækja MIG þá tók ég ekki með heimsóknir Sigrúnar Fjeldsted og Silju Úlfars því þær voru að koma að æfa. Held þær hafi nú samt pínulítið verið að heimsækja mig líka þannig að ég tek orð mín aftur... Svo fattaði ég að ég gleymdi gömlum kærasta sem heimsótti mig einu sinni til Svíþjóðar. Svona er maður nú fljótur að gleyma þessum elskhugum :) Reyndar mjög mjög langt síðan þetta var eða um 8 ár!!! Úff hvað tíminn líður!

Jæja, hrikalegt hvað ég festist við tölvuna þegar mér dettur í hug að breyta útlitinu á síðunni. Er ekki farin að borða síðan ég kom heim af æfingu, hvað þá sturta mig. Ætla að drífa í því og leggjast svo yfir vega og flugbrautagerð.
posted by Thorey @ 13:45  

6 Comments:

At 9:54 e.h., Blogger Hildur said...

Flott lúkkið... Mér finnst ÓL myndin geggjuð...Mig langar í svona mynd af mér...grenj

 
At 5:30 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

hehe ég var nú ekkert æst útaf heimsóknardæminu;) en jú, ég heimsótti þig og völlinn..satt satt:)! Já ÓL myndin er KLIKKUÐ!!Gott að heyra að allt gekk vel..farðu vel með þig.
Sigrún.

 
At 9:49 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með nýja útlitið á síðunni- finnst þetta mjög fínt ! Og sammála með myndina af ÓL- ROSALEGA falleg og flott mynd af þér !

 
At 9:55 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já þetta er allt að koma til. Myndi samt hafa mynd í hausnum sem er jafnbreið og síðan.

 
At 10:02 f.h., Blogger Thorey said...

Takk takk allir

Ég hafði kroppað myndina í hausnum aðeins í hliðinni líka en var að setja myndina aftur inn á þessa að kroppa hliðina. Sé samt engan mun, hún er enn jafn stutt. Skil það ekki alveg..

 
At 12:51 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

golden goose outlet
yeezy
off white clothing
golden goose
supreme hoodie

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile