the
 
the
mánudagur, janúar 30, 2006
Speglun frestað

Ég er að drepast úr hálsbólgu svo þá má víst ekki svæfa mig. Fékk þó tíma eftir viku.
posted by Thorey @ 10:32  

6 Comments:

At 1:31 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Æi vesen að fá hálsbólgu og verða hálf veik en frábært samt að speglunin frestist ekki nema um viku, þetta verður enga stund að líða og viku frestun er ekki svo slæm ;)

 
At 5:21 e.h., Blogger Hildur said...

Gott að þú fékkst tíma strax aftur. Láttu þér batna og farðu vel með þig

 
At 2:48 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

En skemmtilegt að fresta þessu svona... svo þú getir látið þetta bögga þig meira...
En þú verður bara að hugsa vel um þig stelpa... þurfum að fara að loka á þennan sjúkralista þinn!
Heyrumst
Silly

 
At 3:09 e.h., Blogger Hafdís Ósk said...

Heppnin eltir þig greinilega um þessar mundir! Samt gott að þetta er allt að komast - vonum bara það besta!
Annars hef ég mikla trú á að þetta verði fljótt að lagast og þú verðir orðin betri en ný innan skamms ;)

Handboltaleikirnir eru þvílíkt spennandi, ekkert annað hægt að horfa á strákana. Hafa staðið sig svakalega vel!

Hafðu það gott og vertu fljót að jafna þig af hálsbólgunni!

 
At 7:39 e.h., Blogger Thorey said...

Takk stelpur. Gott að vita til þess að það sé hugsað til manns. Vona bara að verði af speglun næst...

Hafdís, sjáumst við ekki á æfingu á morgun? Ég er held ég orðin nógu hress til að æfa svo ég verð að ná inn góðum æfingum fyrir speglunina því ég kem til með að missa eitthvað úr þá aftur.

 
At 3:14 e.h., Blogger Hafdís Ósk said...

Ég mæti í dag (fimmtudag), komst ekki í gær sökum þess að ég fékk 5 blöðrur á fæturna á sama tíma og komst einfaldlega ekki í íþróttaskóna! Ég er aðeins skárri í dag og ætla bara að raða á mig plástrum út um allt og harka af mér - er það ekki málið?

Sjáumst á eftir,

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile