the
 
the
fimmtudagur, júní 30, 2005
Afmælisbarn dagsins var.....

ÉG!!!!!!!!!


Ég hélt smá veislu í kvöld. Það komu um 20 manns en planið var að grilla útí garði. Það þurfti endilega að rigna svo við færum okkur upp í 20fm eldhúsið og höfðum það kósí þar.


Mínar nánustu vinkonur hérna í Þýskalandi: Alina og Angi

Ég keypti 5kg af kjúklingabringum og eldaði í ofni og á pönnu og bar fram með núðlusalati sem Alina gerði fyrir mig, kartöflusalati, salati og hvítlauksbrauði. Bara ansi gott!!!



Það kláraðist nánast allt. Nokkrar bringur eftir og smá kartöflusalat. Ég fer að setja inn eitt albúm á thorey.net þar sem verða myndir frá Íslandsferðinni minni og svo nokkrar frá afmælinu í kvöld.

Ég fékk fullt af góðum gjöfum eins og stóra gólfviftu (búið að vera mjög heitt), inneign fyrir helgarferð til Austurríkis með Tim og Alinu, málband til að mæla atrennu ásamt merkipennum, 2stk handtöskur, hring, eyrnalokka, hlaupnammi, Diesel derhúfu, 2stk freiðivínflöskur og rósir :)
Heima var ég svo búin að fá pening, sturtusápu og krem frá body shop (vanillu - uppáhaldið mitt)

En tilgangi dagsins var náð:
ÉG ER ORÐIN 28 ÁRA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
posted by Thorey @ 22:44  

7 Comments:

At 12:30 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með daginn. Við Guðrún héldum upp á daginn þinn með því að skella okkur á Duran Duran tónleika :-) Frábært alveg.

Kv. Albert

 
At 12:43 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með daginn skvís....Kveðja, Sigrún Fjeldsted.

 
At 7:53 f.h., Blogger Hildur said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

 
At 7:54 f.h., Blogger Hildur said...

Frábært að það var gaman! Ég held hreinlega að ég komi bara og haldi upp á afmælið mitt í Þýskalandi í staðin fyrir Spáni, ekkert smá flottar gjafir sem þú fékkst og mikið af þeim. Frábært líka að maturinn tókst vel.

Heyrumst og hafðu það gott dúlla :)

 
At 2:14 e.h., Blogger Katrin said...

Vaaáaáá...engin smá matarveisla!! aftur til hamingju með daginn, ég söng þvílíkt með á DD tónleikunum í gær þér til heiðurs ;O)

 
At 10:22 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

AAAAAHHH I love you , you are so pretty . I'd die for eating something cooked by you .
Your Argentinian lover , Carlos.

 
At 9:31 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

World Of Warcraft gold for cheap
wow power leveling,
wow gold,
wow gold,
wow power leveling,
wow power leveling,
world of warcraft power leveling,
world of warcraft power leveling
wow power leveling,
cheap wow gold,
cheap wow gold,
buy wow gold,
wow gold,
Cheap WoW Gold,
wow gold,
Cheap WoW Gold,
world of warcraft gold,
wow gold,
world of warcraft gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold
buy cheap World Of Warcraft gold v3k6n7ik

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile