the
 
the
miðvikudagur, nóvember 10, 2004
Ég fór í sund og gufu í gær. Eins og þið vitið þá þarf að vera nakinn í gufu hér í Þýskalandi..... ojoj en ég er svo sniðug, ég valdi auðvitað frauenstag!! Ég fór í síðustu viku á venjulegum degi og þótt ég þekki engann þá bara meika ég ekki að vera nakin um alla þessa karla sem fara í gufu til að horfa á kvenfólkið!! Vibbi. En þetta er samt rosalega notalegur staður þegar maður getur slakað almennilega á. Þarna eru 4 gufur og heitur pottur og svo er lítil útisundlaug (notabene, ferð líka nakinn í hana) og hvíldarherbergi með arin og veitingabar. Þarna er hægt að sitja á sloppnum við arinn, lesa góða bók og sötra einhvern bragðgóðan og svalandi drykk.

Angela er alveg ótrúleg! Kærastinn hennar kemur í heimsókn til hennar í kvöld og verður fram á morgun. Hann er þrítugur (hún tvítug), skilinn og á eitt barn. Hann fer svo á morgun og annaðkvöld kemur fyrrverandi kærastinn hennar og verður fram á sunnudag.... hún á bara eitt rúm....
Svo var hún að bjóða mér með sér og tveimur "vinum" hennar til Dusseldorf á einhvern bar á miðvikudagskvöld í næstu viku. Og ég spurði auðvitað hvaða vinir hennar þetta væru. "Æ, tveir strákar sem ég hitti á bar á föstudagskvöld...." jájá einmitt!!
Ég spyr, er svona system sniðugt eða ekki? Ég held að þetta mundi aldrei gerast á Íslandi í fyrsta lagi þar sem fólk er svo bælt þegar kemur að flörti og svo held ég að flestum finnist þetta ekki við hæfi ef maður er á föstu. Hún er samt voða skotinn í þessum kærasta og er ekkert að fara að gera með hinum gaurunum plús að hún er bara tvítug. Stundum finnst mér þetta fáránlegt og stundum finnst mér þetta kannski allt í lagi.. en ég yrði nú samt brjáluð ef kærastinn minn mundi haga sér svona...!!
posted by Thorey @ 17:16  

2 Comments:

At 11:37 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

mér finnst þetta ótrúlegt með þessa gufu, veit ekki hvort ég gæti þetta, ég yrði líka brjáluð ef kærastinn minn myndi haga sér eins og Angela, úff einum of frjálslegt þarna í Þýskalandi.

 
At 11:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

úps ég gleymdi að segja að þetta var Bryndís

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile