the
 
the
miðvikudagur, maí 21, 2003
Eurovision!!
Hvað er skemmtilegra en Eurovisionkeppni á laugardagskvöld með ostum og snakki? Enn eina ferðina missi ég af þessari frábæru keppni en ég mun að sjálfsögðu láta taka þetta allt saman upp á band. "Birgitta stefnir hátt" stendur á forsíðu Moggans. Já íslenska laginu er spáð 5.sæti. Aldrei að vita nema Birgitta nái að heilla dómara upp úr skónum. Hún hefur þegar náð að heilla alla þjóðina og krakkarnir biðja orðið um Rís í tonnatali. Það væri gaman að sjá sölutölur á Rís eftir að Birgitta fór að auglýsa.
Ég mun hugsa til ykkar Íslendinga á laugardagskvöld fyrir framan kassann. Áfram Ísland!! (ekki xD)
posted by Thorey @ 11:24  

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile