Æ hvað það er nú alltaf gott að koma heim. Búin að fá ekkert nema veislumat frá henni múttu.. ummmmm fisk og steik og fisk aftur :) Hitti tvær vinkonur á föstudaginn og æði að geta spjallað auglitis til auglits í stað msn spjalls. Svo fór ég á rúntinn á laugardag og tók fullt af myndum í fallega veðrinu en eitthvað urðu þær nú skakkar því mér var svo kalt á höndunum að ég smellti af eins fljótt og ég gat. Svo er ég bara búin að vera að læra og hlusta á Baugskjaftæði daginn út og inn...
Í kvöld er það svo TMC reunion en flestir eru þó erlendis í meistaranámi!
1 Comments:
Flottar myndir, en ósköp kuldalegar :o) Velkomin heim, vonandi verður gaman hjá þér á meðan þú ert á Íslandi.
Skrifa ummæli
<< Home