the
 
the
miðvikudagur, september 07, 2005
Monaco

Ég held af stað til Monaco í fyrramálið til að keppa á síðasta mótinu mínu á þessu ári. Stöng kvenna er á laugardag en stöng karla á föstudag svo ég get horft á strákana í rólegheitunum á föstudagskvölidið. Eftir mótið á laugardaginn er svo Gala kvöld og fann ég mér kjól fyrir það kvöld. Rosalega langt síðan ég hef verið í kjól svo ég veit nú ekki alveg stuðið sem verður á mér. Í fyrra var ég bara í gallabuxum og bol og var, eins og nokkrir aðrir sem voru þarna í fyrsta sinn, eins og álfur út úr hól. Það voru allir svo fínir.

Mótið sjálft leggst nú hreint út sagt ill í mig. Ég hreinlega býst ekki við neinum árangri þarna. Búin að vera veik og að drepast í hásininni og fætinum sjálfum og hef því bara varla æft nokkuð. Ég vann mér þó inn rétt til að keppa þarna og ætla að gera það sem ég get. Byrjunarhæðin verður þó ekki undir 4,40......

En síðasta mótið, fullt af skemmtilegu fólki og svo FRÍ!!
posted by Thorey @ 21:13  

6 Comments:

At 9:47 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ.
Um að gera að drífa þig og hafa bara rosalega gaman af. Ekki á hverjum degi sem maður fær boð á svona mót, og eins og þú segir..síðasta mótið og svo frí.
Góða skemmtun segi ég nú bara.
Kv. Albert
P.s. Hljómaði hálf fáránlega að heyra að þú "nenntir ekki" til Kína......HALLLLLÓÓÓÓÓ

 
At 11:28 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ekkert svona. Bara kylir a tetta sidasta mot :) Gangi ter vel og skemmtu ter vel!!! Kvedja, Sigrun.

 
At 12:04 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Núna er bara að hafa gaman af þessu hvernig svo sem þetta fer.
Góða skemmtun og gangi þér vel. Vigdís

 
At 12:08 e.h., Blogger Hafdís Ósk said...

Árangurinn kemur oft þegar maður býst síst við honum...

Gangi þér vel!

 
At 2:08 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Skemmtu þér bara svaka vel,,, alla vegana gátum við það í síðustu ferð

tíds,,, biða að heilsa "vini" mínum

knús Eva Lind

 
At 12:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

kyrie irving shoes
golden goose outlet
nike kyrie 5
fear of god
golden goose
supreme clothing
yeezy 380
goyard outlet
kobe shoes
off white

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile