the
 
the
föstudagur, september 10, 2004
Ítalíuferðin var nú ágætlega skemmtileg þótt ég hafi sökkað í keppninni. Ég var bara engan veginn að fíla mig og var bara hreinlega eins og sprungin blaðra. Ok, ykkur finnst ég hæg fyrir en þið hefðuð átt að sjá mig þarna. Ég hreyfðist ekki... hehe Ég held að ástæðan fyrir því sé bara sú að ég er orðin mjög þreytt og hef bara ekki náð að jafna mig af kvefinu. Ég stökk bara á æfingaatrennunni minni og á æfingastöngum og fór 4,20 sem er bara það vanalega sem ég stekk á þessarri atrennu.

Við Kellie og Mary höfðum það samt fínt í ferðinni. Kíktum aðeins í búðir og á ítölsk kaffihús þar sem við gátum fundið ýmislegt girnilegt. Eins og ég sagði þá vorum við allar saman í herbergi og komst ég að ýmislegu furðulegu um þær stöllur. Kellie er með samanbrjótunar áráttu. Hún brýtur saman g-strengina sína meira að segja.... hehehe
Ég var að setja inn myndir sem þið getið kíkt á á thorey.net

Núna hef ég heila 10 daga í pásu frá ferðalögum. Ég ætla bara að sofa, borða og æfa. Ég vona að ég nái að pumpa í dekkin mín og rúlli atrennuna í Monaco.
posted by Thorey @ 14:39  

4 Comments:

At 3:42 e.h., Blogger Hildur said...

hahahaha....færð mig alltaf til að hlæja....hahaha

 
At 4:20 e.h., Blogger Thorey said...

gaman að heyra það :)

 
At 10:58 f.h., Blogger Ásdís said...

Hmmm... Eg bryt lika saman g-strengina mina... Vissi ekki ad thad vaeri oedlilegt fyrr en nuna ;)

Asdis Joh.

 
At 12:51 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

golden goose outlet
yeezy
off white clothing
golden goose
supreme hoodie

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile