the
 
the
mánudagur, ágúst 16, 2004
ÉG ER TILBÚIN!!!!
Munið þið eftir laginu sem síminn notaði til að undirbúa fólk fyrir 7 stafa símanúmerin? Ok, hvað með það, ég er allavega tilbúin fyrir Aþenu. Ég er í mínu besta formi ever og er búin að gera allt sem ég mögulega get (og er leyfilegt ;)) til þess að standa mig vel í Aþenu. Æfingaprógrammið er að smella saman og sjálfstrausið er gott. Ég fór 4,40 á þessu æfingamóti í dag sem er persónulegt best á æfingu. Sama hvað gerist næsta laugardag þá er ekkert sem ég get gert eða hefði getað gert betur í undibúningnum. Nú halla ég mér bara aftur í stólnum og læt hlutina gerast.

Eins og ég sagði í gær mun ég líklega nota thorey.net mest þegar ég er í Aþenu. Bara verst að þar er ekki hægt að commenta (ekki eins og ég fái mikið af commentum yfir höfuð) en ef þið fáið commenta andann yfir ykkur getið þið bara sent mér póst með því að ýta á Hafðu samband flipann á thorey.net eða commentað hér á efstu fréttina.

Ég ætla að njóta lífsins næstu tvær vikur, hafið það líka gott dúllurnar mínar.

Ykkar Þórey
posted by Thorey @ 21:50  

21 Comments:

At 10:21 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

bara að athuga hvort þetti virki, var að fá einhverja kvartanir frá henni múttu minni um að hún geti ekki commentað..
sjáum hvað gerist þegar ég ýti á post

Þórey

 
At 10:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það virkaði - Góða ferð og gangi þér vel - njóttu staðar og stundar til fulls - við hugsum til þín á hverjum degi og sendum þér hvatningarorð með lengstu línu heimsins.
Mamma og pabbi

 
At 10:35 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel á laugardaginn. Við horfum spennt á frá hofuðborg kanaveldis. Guðrún og Jay

 
At 11:45 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Góða ferð og gangi þér vel!:)

 
At 8:29 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

gangi þér rosa rosa vel, og mundu; þú ert besssst ;o)

kveðja Eva Lind

 
At 4:32 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér nú allt í haginn í Aþenu! Mun fylgjast spennt með og hugsa til þín :)

Kveðja Halla Eiríks

 
At 4:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel og umfram allt, skemmtu þér vel!

 
At 4:45 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Við hérna í Prentsmiðjunni Odda sendum innilegar kveðjur til þín og óskum þér alls hins besta.

Sigga símamær og aðrir Oddaverjar.

 
At 5:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér ótrúlega vel Þórey mín....Hef fulla trú á þér eins og allir aðrir. Hlakka ekkert smá til að sjá þig stökkva...stattu þig stelpa;) Og já, góða skemmtun!!!
Kveðja, Sigrún Fjeldsted

 
At 9:44 e.h., Blogger Rikey Huld said...

Góða ferð Þórey, gangi þér vel og góða skemmtun;)

 
At 1:17 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér rosalega vel Þórey, ég hef fulla trú á að þú standir þig rosalega vel, sama hvernig allt fer. Ég mun fylgjast vel með og senda strauma þegar þú ert að keppa. Koma svo!!!

Sigurjón.com

 
At 3:31 e.h., Blogger Hildur said...

Góða ferð og gangi þér rosalega vel. Við þurfum varla að segja það því þú veist það að þú er LANGBESTUST...
Við fylgjumst vel með og vonum bara að Baunar sýni frá stangastökki, en annars verður það bara mbl.is sem við treystum á.
Kv. Hildur og Hákon

 
At 5:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel á laugardaginn!

Kv. - Jón Björn

 
At 6:55 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér alveg rosalega vel á laugardaginn, og njóttu þess.

Kv. Vigdís

 
At 11:23 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

You go girl! ;)
Jóhanna

 
At 10:07 e.h., Blogger Hafdís Ósk said...

Ég hlakka svakalega til að sjá þig standa þig stelpa - efast ekki um að þú gerir það.
Ætla að leyfa mér að óska þér strax til hamingju - get ekki ímyndað mér að það sé til betri tilfinning fyrir íþróttamann en að vera algjörlega tilbúinn í slaginn á Ólympíuleikunum.
Vonandi nýtur þú þín til ýtrasta...

Bestu kveðjur frá Fróni,

Hafdís og Sveinbjörn

 
At 10:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Við erum að tala um að ég setti þig í 3. sætið í ÓL-getraun frjalsar.com svo það er eins gott að þú hafir gaman af því að bæta þig! 4,70 eru þarna einhvers staðar.

kv. Óli Margeirs

 
At 10:03 f.h., Blogger Thorey said...

WOW!! Takk ollsomul!! Gaman ad vita ad thid hugsid til min, eg aetla ad standa mig vel :)

 
At 11:14 f.h., Blogger Daniel said...

Gangi þér vel!!

 
At 3:52 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

jiminn ég er svo spennt ;)

hlakka til að sjá þig fljúga yfir hæðirnar ;) gangi þér vel sætasta sæta, en fyrst og fremst góða skemmtun :D

verð límd við skjáinn...og störf af spenningi :)

 
At 12:50 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

air jordan
nike sb dunk high
jordans shoes
curry shoes
jordan travis scott
air jordan
adidas yeezy
supreme hoodie
kyrie irving
supreme shirt

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile