laugardagur, september 15, 2007 |
Fréttir |
Mjög mikið búið að vera að gerast hjá mér síðustu vikur. Við Gummi flugum til Þýskalands frá Japan á mánudegi og það var 24 tíma ferðalag. Á þriðjudegi fluttum við allt dótið mitt í nýja íbúð sem ég var að fá og var það búið 01 um kvöldið. Á miðvikudegi flugum við svo heim og tók það sinn tíma og kraft. Á fimmtudegi keyrðum við norður á Hvammstanga fórum þaðan upp á Arnarvatnsheiði á fjórhjólum. Á föstudegi var vaknað kl 06 og var smalað, gengið og fjórhjólast í 13 tíma! Á laugardegi var vaknað kl 04 og féð rekið niður í rétt. Það var búið um kl 17. Um kvöldið var síðan réttarball.
Semsagt, þessi vika er búin að fara í afslöppun!!
Hef það annars mjög gott. Hásinarnar miklu miklu betri eftir hvíldina og það styttist mjög í að ég fari að byrja að æfa aftur. |
posted by Thorey @ 17:11 |
|
|
|
|
6 Comments:
Þórey ekki segja þetta. Þú veist vel að þú fórst ekki norður á Hvammstanga. Miklu frekar Laugarbakka ;)
Helga Margrét
þetta er náttúrulega ekki hægt!! ég á heima á Syðsta-Ósi!!
Gummi
Já sorry ég gleymdi mér aðeins. Greinilega smá sveitaerjur í gangi hér.. Lofa að móðga engann meir í þessu máli.
Usss...FH, ÍR eða Breiðablik, þetta er ekki sömu liðin Þórey mín. Sama má segja um Kormák, Gretti eða Dagsbrún (sem er btw besta liðið af þessum þremur) ;)
Það var lagið ;) Dagsbrún klárlega lang besta liðið ;)
Kv. Helga Margrét
adidas shoes
links of london
birkin bag
jordan 11
yeezy boost 500
fila shoes
curry 5
adidas ultra boost
adidas yeezy
hermes belts for men
Skrifa ummæli
<< Home