the
 
the
fimmtudagur, ágúst 02, 2007
HM undibúningur á fullu
Stökk í morgun og var þetta mín besta æfing á fullri atrennu. Fór 4,20 bara létt og rétt felldi 4,30 á skokkskónum. Náði nokkrum rosa góðum stökkum með fínu uppstökki. En það er frekar erfitt að fá gott uppstökk í skokkskóm því þeir eru bæði þungir og mjúkir. Hlakka til að fara í gaddanana í næstu viku.

Ég er að plana HM en því miður er ekki möguleiki fyrir mig að fara með þjóðverjunum í æfingabúðir fyrir mótið því það er allt yfirbókað þar sem þeir verða. Semsagt síðustu 10 dagana mun ég ekki æfa með þjálfaranum mínum :(
Ég ákvað þó að reyna að gera gott úr þessu og hringdi í hann Védda karlinn og mun ég líklega fara með honum, íþróttamönnunum hans og dönunum í æfingabúðir. Það verður bara gaman að æfa með honum og svo fer Gummi líka með mér sem fararstjóri og þjálfari. Þetta eru kannski 1-2 stökkæfingar sem ég þarf að komast i gegn án Leszek og mun video myndavélin koma þar að góðum notum. Það er nú svosum ekki víst að það sé laust hjá þeim en ég fæ staðfestingu á því í dag vonandi. Ef þar er allt fullt líka hringi ég í Stanley, gamla þjálfarann minn, og reyni að fá að fara með honum og Svíunum. En krossum putta og vonum bara að við Gummi getum farið með dönunum.

Fékk 3.ju sprauturnar (ein í hvorn fót) í dag en ég mundi segja að ég væri búin að ná um 40-50% bata með hinar tvær. Rens Blom, heimsmeistari frá Helsinki, gaf út í gær að hann ætlaði ekki að fara því hann væri það slæmur í hásinunum. Við erum með nákvæmlega sama vandamál en ég mundi telja hann mjög óheppinn að hafa ekki prófað þessar sprautur sem ég er að fá. Hann var búinn að reyna endalaust nudd sem virkar ekki rassgat. Ég veit ekki hvað ég er búin að fá mikið af marblettum eftir nudd á kálfana en aldrei hefur neitt lagast við það. Svo ég segji bara núna "I´m a junky"
posted by Thorey @ 13:40  

1 Comments:

At 3:39 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ sæta mín,

Gaman að heyra að þú sért öll að koma til, smá efnafræði (sprautur) og málið er dautt. Vona að þið komist í búðir með skemmtilegu fólki það er alveg möst ... og ég sem hélt að það væri bara lykillinn að borða pasta eða pizzu fyrir mót möhahaha :)

Knús til þín sæta mín

Eva Lind

 

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile