the
 
the
föstudagur, febrúar 21, 2003
Á morgun fer ég til Svíþjóðar og verð þar í viku. Ég keppi fyrst í Malmö á sunnudag og fer svo með Völu og þjálfaranum hennar til Gautaborgar að æfa í viku. Næstu helgi keyrum við svo til Stokkhólms og ég keppi þar sunnudaginn 2.mars. Strax að lokinni keppni keyrum við tilbaka (ég hef ekki hugmynd um hvar ég muni vera frá sunnudegi til þriðjudags en það mun víst koma í ljós). Þann 4.mars flýg ég svo til Athens í Grikklandi og keppi þar þann 7. Eftir þá keppni fer ég vonandi til Þýskalands og keppi í Sindelfingen en það fer eftir því hvernig hinar keppnirnar á undan ganga. Ef þær ganga vel kemst ég líklega inn á það mót. Baráttan er hörð í dag. Það er mjög erfitt að komast inn á mót en við erum orðnar svo margar sem erum í baráttunni. Ferðin leggst mjög vel í mig og ég get ekki beðið eftir að komast út á braut og stökkva.
posted by Thorey @ 22:17  

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile