| 
                        
                          | laugardagur, janúar 18, 2003 |  
                          |  |  
                          | Lenti 6 í gærmorgun, lagði mig frá 10 til 13:30, fór í tíma frá 3 til 4 og þá tilkynnti Silja Hrund að ég gæti komið með í vísindaferðina sem byrjaði eftir korter.  Ég brunaði á öðru hjólinu heim og skellti mér í gallann.  Kvöldið var svo alveg frábært, bara eitt það besta held ég.  Byrjað var í vísó í VST (Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen) og var svo farið á Astro.  Þar var troðið kl 20:00!!!  Við Silja, Katrín, Danni, Stebbi og Siggi fórum svo í kapphlaup (ótrúlegur kuldi úti) upp á Sólon sem var dauður þannig að kapphlaupið hélt áfram að Nonna.  Enduðum svo tryllt á dansgólfinu á Astro.  Það besta er að maður er kominn heim á miðnætti og er mjög sáttur við að fara þá heim. |  
                          | posted by Thorey @ 23:50   |  
                          |  |  | 
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home