the
 
the
miðvikudagur, maí 21, 2008
Allt að koma
Stökk í gær og verður hver stökkæfingin núna alltaf betri og betri. Stökk bara á gúmmiteygju til að einbeita mér frekar að tækninni heldur en að fara yfir. Enn einu sinni var ég þó bara í flatbotna skóm en býst við að geta stokkið á göddum í næstu viku. Ég er nefninlega að fara til Munchen aftur á fimmtudagskvöld og fæ eina meðferð hjá lækninum á föstudaginn. Ætti að tryggja mér allavega 2 góðar vikur með því. Síðan er næsta mót þann 30.maí í Saulheim. Þar næst er mót í Regensburg 8.júní og svo í Marokkó þann 14.júní. Ég hlakka svo til að taka svona seríu af mótum. Mjög langt síðan að ég hef getað keppt helgi eftir helgi.

Hitti í gærkvöldi stelpu frá Mauritius sem býr í Leverkusen af því að hún er gift manni héðan. Áður bjó hún í Jóhannesarborg, Dubai og Doha! Vann þar á hóteli við að stjórna VIP móttökum. Hitti þar þjóðverja og kom með honum hingað. Einnig var írsk stelpa með okkur sem býr núna hérna til að æfa hástökk. Áður bjó hún á Ítalíu og svo auðvitað á Írlandi. Semsagt mjög alþjóðlegt kvöld með 3 konum sem hafa búið samtals í 10 löndum! Gátum sko talað um ýmislegt :)
posted by Thorey @ 07:51  

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Þórey Edda Elísdóttir

See my complete profile