| 
  
    | 
                        
                          | mánudagur, júlí 23, 2007 |  
                          | Helgin |  
                          | Fór að horfa á Helgu Margréti og Sveinn Elías keppa á Evrópumeistaramóti 19 ára og yngri í Hengelo um helgina. Þeim gekk báðum vel og bættu sig bæði stigalega séð í heildina og einnig í nokkrum einstökum greinum. Bæði lentu þau í 10.sæti og óska ég þeim báðum til hamingju með það. 
 Einnig var þýska meistaramótið um helgina en það er alltaf mjög spennandi af því leitinu að í ljós kemur hverjir eru valdir í liðið á HM í Osaka eftir 5 vikur. Danny vann og Björn annar og fara þeir báðir auk Tim. Svo vann Silke með 4,50 og fer hún auk Juliu Hütte og Carolin Hingst. Hún Angi mín stökk 6,27 í langstökkinu og lenti í 5.sæti sem er hennar allra besta sæti á DM. Sebastian fór 2,14 í hástökkinu og dugði það honum í 3.sæti. Frábært hjá þeim báðum.
 
 Í fyrramálið er stökkæfing og ætla ég í fulla atrennu. Læt ykkur vita hvernig fer.
 
 Setti inn nýjar myndir hér
 |  
                          | posted by Thorey @ 15:49   |  
                          |  |  |  |  | 
1 Comments:
ralph lauren uk
yeezy boost 350
kd 10
tory burch sandals
nike epic react
hermes online shop
iniki
michael kors outlet
jordan sneakers
adidas tubular
Skrifa ummæli
<< Home